Jarðfræðafélagið stendur fyrir tveimur árlegum ráðstefnum sem eru opnar fyrir meðlimi jafnt sem áhugasama utanfélagsmenn. Þannig gefur félagið vísindafólki og nemum tækifæri til að kynna nýjustu rannsóknir sínar og kynnast rannsóknum annarra.
Vorfundir Jarðfræðafélagsins eru opnar þverfaglegar ráðstefnur, þar sem öll svið jarðvísinda eiga upp á pallborðið. Hvorutveggja fyrirlestrar og veggspjöld eru í boði. Vorráðstefnur Jarðfræðafélagsins eru haldnar 2. föstudag í mars ár hvert.
Haustfundir snúast að öllu jöfnu um sérstök viðfangsefni, og ákveður stjórnin viðfangsefnið hverju sinni. Fyrirlesurum er boðið sérstaklega til að fjalla um sérstök viðfangsefni og kynna nýjustu niðurstöður og eru veggspjöld um samskonar viðfangsefni frá öðrum einnig vel þegin. Haustráðstefnur Jarðfræðafélagsins eru haldnar 3. föstudag í nóvember ár hvert.
Síðasta ráðstefna var: Haustráðstefna JFÍ og JÖRFÍ með þemað “Jöklar á hverfanda hveli”, 21. nóvember 2025.Næsta ráðstefna verður annan föstudag í mars 2026.