Um félagið

Stjórn, lög og siðareglur

Félagið var stofnað 16. mars 1966

Stjórn

2022-2023
Þorsteinn Sæmundsson (formaður), Michelle Maree Parks (varaformaður), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldkeri), Hafdís Eygló Jónsdóttir (ritari), Ásta Rut Hjartardóttir, Halldór Geirsson og Bjarni Gautason (meðstjórnendur).

1966-1968: Sigurður Þórarinsson (form), Guðmundur E. Sigvaldason (rit), Þorleifur Einarsson (gjaldk), Þorbjörn Sigurgeirsson, Guðmundur Pálmason.

1968-1969: Trausti Einarsson (form), Sveinbjörn Björnsson (rit), Þorleifur Einarsson (gjaldk), Þorbjörn Sigurgeirsson, Guðmundur Kjartansson.

1969-1970: Trausti Einarsson (form), Sveinbjörn Björnsson (rit), Haukur Tómasson (gjaldk), Guðmundur Kjartansson, Páll Theódórsson.

1970-1971: Guðmundur E. Sigvaldason (form), Páll Theódórsson (rit), Haukur Tómasson (gjaldk), Guðmundur Pálmason, Sveinn P. Jakobsson.

1971-1972: Guðmundur E. Sigvaldason (form), Kristján Sæmundsson (rit), Guðmundur Pálmason, Sveinn P. Jakobsson, Svend Aage Malmberg.

1972-1973: Þorleifur Einarsson (form), Kristján Sæmundsson (rit), Svend Aage Malmberg Sveinbjörn Björnsson, Sigurður Steinþórsson.

1973-1974: Þorleifur Einarsson (form), Karl Grönvold (rit), Leo Kristjánsson (gjaldk), Sveinbjörn Björnsson, Sigurður Steinþórsson.

1974-1975: Sveinbjörn Björnsson (form), Karl Grönvold (rit), Leo Kristjánsson (gjaldk), Axel Björnsson, Sigríður P. Friðriksdóttir.

1975-1976: Sveinbjörn Björnsson (form), Axel Björnsson (rit), Sigríður P. Friðriksdóttir (gjaldk), Kjartan Thors, Leifur A. Símonarson.

1976-1977: Karl Grönvold (form), Leifur A. Símonarson (rit), Kjartan Thors (gjaldk), Birgir Jónsson, Hrefna Kristmannsdóttir.

1977-1978: Karl Grönvold (form), Haukur Jóhannesson (rit), Birgir Jónsson (gjaldk), Hrefna Kristmannsdóttir, Páll Einarsson.

1978-1979: Axel Björnsson (form), Haukur Jóhannesson (rit), Davíð Egilson (gjaldk), Páll Einarsson, Jón Eiríksson.

1979-1980: Axel Björnsson (form), Helgi Torfason (rit), Davíð Egilson (gjaldk), Jón Eiríksson, Gillian Foulger.

1980-1981: Kjartan Thors (form), Gillian Foulger (rit), Helgi Torfason (gjaldk), Sigmundur Einarsson, Stefán Arnórsson.

1981-1982: Kjartan Thors (form), Stefán Arnórsson (rit), Ingibjörg Kaldal (gjaldk), Sigmundur Einarsson, Kristinn Albertsson.

1982-1983: Sigurður Steinþórsson (form), Kristinn Albertsson (rit), Ingibjörg Kaldal (gjaldk), Hallgrímur Jónasson, Margrét Kjartansdóttir.

1983-1984: Sigurður Steinþórsson (form), Hallgrímur Jónasson (rit), Margrét Kjartansdóttir (gjaldk), Ágúst Guðmundsson eldri, Hreinn Haraldsson.

1984-1985: Hrefna Kristmannsdóttir (form), Sigríður P. Friðriksdóttir (rit), Ágúst Guðmundsson eldri (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Leifur A. Símonarson.

1985-1986: Hrefna Kristmannsdóttir (form), Sigríður P. Friðriksdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Leifur A. Símonarson, Guðrún Larsen.

1986-1987: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Guðrún Larsen (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Gylfi Þ. Einarsson, Árný Sveinbjörnsdóttir.

1987-1988: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Árný Sveinbjörnsdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Gylfi Þ. Einarsson, Margrét Hallsdóttir.

1988-1989: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Margrét Hallsdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Guðrún Helgadóttir, Þorgeir Helgason.

1989-1990: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Guðrún Helgadóttir (rit), Ásgrímur Guðmundsson (gjaldk), Þorgeir Helgason, Áslaug Geirsdóttir.

1990-1991: Stefán Arnórsson (form), Auður Andrésdóttir (rit), Ásgrímur Guðmundsson (gjaldk), Áslaug Geirsdóttir, Steinunn Jakobsdóttir.

1991-1992: Stefán Arnórsson (form), Auður Andrésdóttir (rit), Hjalti Fransson (gjaldk), Steinunn Jakobsdóttir, Gestur Gíslason.

1992-1993: Freyr Þórarinsson (form), Guðrún Larsen (rit), Hjalti Franson (gjaldk), Gestur Gíslason, Guðrún Sverrisdóttir.

1993-1994: Freyr Þórarinsson (form), Guðrún Larsen (rit), Guðmundur Ómar Friðleifsson (gjaldk), Guðrún Sverrisdóttir, Hreinn Haraldsson.

1994-1995: Ágúst Guðmundsson yngri (form), Guðrún Larsen (rit), Guðmundur Ó. Friðleifsson (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Georg Douglas.

1995-1996: Ágúst Guðmundsson yngri (form), Guðrún Larsen (rit), Skúli Víkingsson (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Magnús T. Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Georg Douglas.

1996-1997: Árný E. Sveinbjörnsdóttir (form), Guðrún Larsen (rit), Skúli Víkingsson (gjaldk), Georg Douglas, Helgi Torfason,  Hreinn Haraldsson, Magnús T. Guðmundsson.

1997-1998: Árný E. Sveinbjörnsdóttir (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Hjálmar Eysteinsson (gjaldk), Georg Douglas, Helgi Torfason, Kristján Ágústsson, Magnús T. Guðmundsson.

1998-1999: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Hjálmar Eysteinsson (gjaldk), Auður Ingimarsdóttir, Bryndís Róbertsdóttir, Kristján Ágústsson, Sigurður Sveinn Jónsson.

1999-2000: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Bryndís Róbertsdóttir (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson, Grétar Ívarsson, Haraldur Auðunsson, Kristján Ágústsson.

2000-2001: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Kristján Ágústsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson, Grétar Ívarsson, Haraldur Auðunsson, Þorsteinn Þorsteinsson.

2001-2002: Helgi Torfason (form), Haraldur Auðunsson (vform), Kristján Ágústsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Jórunn Harðardóttir, Grétar Ívarsson, Þorsteinn Þorsteinsson.

2002-2003: Ármann Höskuldsson (form), Haraldur Auðunsson (vform), Hjörleifur Sveinbjörnsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Grétar Ívarsson, Jórunn Harðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.

2003-2004: Ármann Höskuldsson (form), Haraldur Auðunsson (vform), Hjörleifur Sveinbjörnsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Vigdís Harðardóttir, Jórunn Harðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.

2004-2005: Ármann Höskuldsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Andri Stefánsson (rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2005-2006: Ármann Höskuldsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Andri Stefánsson (rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2006-2007: Andri Stefánsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Ingibjörg Elsa Björnsdóttir(rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2007-2008: Andri Stefánsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Eydís Eiríksdóttir(rit), Kristín Vogfjörð, Sóley Unnur Einarsdóttir, Anette Kæregaard Mortensen.

2008-2009: Andri Stefánsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Anette Kæregaard Mortensen (gjaldk), Eydís S. Eiríksdóttir (rit), Þorsteinn Sæmundsson, Sóley Unnur Einarsdóttir, Björn Harðarson.

2009-2010: Þorsteinn Sæmundsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Sóley Unnur Einarsdóttir (gjaldk), Eydís S. Eiríksdóttir(rit), Ívar Örn Benediktsson, Björn Harðarson, Theódóra Matthíasdóttir.

2010-2011: Þorsteinn Sæmundsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Guðrún Eva Jóhannsdóttir (gjaldk), Ívar Örn Benediktsson (rit), Björn Harðarson, Theódóra Matthíasdóttir, Lúðvík Eckardt Gústafsson.

2011-2012: Þorsteinn Sæmundsson (form), Björn Harðarson (vform), Guðrún Eva Jóhannsdóttir (gjaldk), Ívar Örn Benediktsson (rit), Benedikt Gunnar Ófeigsson, Theódóra Matthíasdóttir, Lúðvík Eckardt Gústafsson.

2012-2013: Þorsteinn Sæmundsson (form), Theódóra Matthíasdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Ólafur Ingólfsson, Björn Harðarson, Benedikt Gunnar Ófeigsson.

2013-2014: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Þorsteinn Sæmundsson (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk),  Sigurður Garðar Kristinsson (rit), Erla María Hauksdóttir, Björn Harðarson, Benedikt Gunnar Ófeigsson.

2014-2015: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk),  Sigurður Garðar Kristinsson (rit), Erla María Hauksdóttir, Björn Harðarson, Þorsteinn Sæmundsson.

2015-2016: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Erla María Hauksdóttir (rit), Björn Harðarson, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.

2016-2017: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Erla María Hauksdóttir (rit), Björn Harðarson, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.

2017-2018: Þorsteinn Sæmundsson (form), Erla María Hauksdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Ásta Rut Hjartardóttir, Þóra Björg Andrésdóttir.

2018-2019: Þorsteinn Sæmundsson (form), Þóra Björg Andrésdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Ásta Rut Hjartardóttir, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir og Erla María Hauksdóttir.

2019-2020: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

2020-2021: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

2021-2022: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

Lög félagsins

01.

Félagið heitir Jarðfræðafélag Íslands (Erlent heiti Geoscience Society of Iceland).

02.

Hlutverk félagsins er að efla íslenskar jarðfræðarannsóknir. Þessu hlutverki hyggst félagið gegna með því að:

a. Stuðla að kynningu íslenskra vísindamanna í hinum ýmsu greinum jarðfræða.
b. Efna til umræðufunda, er haldnir skulu a.m.k tvisvar á ári.
c. Stuðla að skipulagningu og samræmingu jarðfræðarannsókna á Íslandi.
d. Vera aðili að alþjóðasamtökum og alþjóðasamvinnu á sviðum þessara fræða.

03.

a. Félagsmenn geta orðið allir vísindamenn á sviði jarðfræði, jarðefnafræði og jarðeðlisfræði, svo og vísindamenn í skyldum fræðigreinum, sem vinna að rannsóknum á ofangreindum sviðum.

b. Stofnanir sem starfa á sviði jarðvísinda geta einnig fengið aðild að félaginu. Tilgangurinn með slíkri aðild er að efla samstarf á öllum sviðum jarðvísinda sem og tengsl milli félagsmanna og stofnana.

04.

Stjórn félagsins skipa sjö menn. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega, en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti. Annað árið ganga úr stjórninni formaður og þrír aðrir stjórnarmenn, en hitt árið þrír stjórnarmenn.

05.

Aðalfund skal halda að vori ár hvert, en þó ekki síðar en í lok júní og dagskrá hans skal vera sem hér segir:

a. Skýrt frá helstu framkvæmdum á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins
c. Kosin stjórn með skriflegri kosningu. Ennfremur skulu kosnir tveir endurskoðendur reikninganna og einn varaendurskoðandi.
d. Inntaka nýrra félaga.
e. Önnur mál.

Aðalfund skal boða skriflega og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum nema annað sé til tekið í félagslögum.

06.

Lagabreytingar geta aðeins orðið á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu tilkynntar í fundarboði og til þess að þær öðlist gildi þurfa þær að vera samþykktar með minnst 2/3 greiddra atkvæða.

07.

Tillögur eða beiðnir um upptöku nýrra félaga skulu sendar stjórninni, sem ber þær upp á aðalfundi.

08.

Árgjald einstaklinga og stofnana skal ákveðið á aðalfundi.

Atkvæðisbærir á aðalfundi eru þeir einir, sem greitt hafa árgjöld sín.

Hver stofnun getur tilnefnt fulltrúa sem fer með atkvæði hennar. Fulltrúi stofnunar hefur ekki kjörgengi til setu í stjórn nema hann sé félagi í Jarðfræðafélagi Íslands.

Siðareglur

Codex Ethicus Jarðfræðafélag Íslands

Jarðvísindi er samheiti yfir þær fræðigreinar sem fást við samsetningu, uppbyggingu, þróun, sögu og auðlindir jarðar. Ennfremur fjalla jarðvísindi um hagnýtingu þeirrar þekkingar sem fræðigreinin býr yfir. Forsendur fyrir faglegri hæfni og starfsréttindum jarðvísindamanns eru að viðkomandi hafi nauðsynlega menntun eða faglega reynslu sem viðurkennd er af lögaðilum í viðkomandi landi. Sérhver slíkur aðili, hér nefndur jarðvísindamaður, er ábyrgur fyrir því áliti sem hann skapar sér og félögum sínum hjá almenningi og viðskiptavinum.


Allir félagar í Jarðfræðafélagi Íslands (JFÍ) samþykkja að starfa samkvæmt þeim siðareglum sem hér eru kynntar og taka tillit til þess anda sem fram kemur í þeim. Siðareglur eru settar til að lýsa og skerpa á samskiptareglum innbyrðis milli félaga sem og við vinnuveitendur og viðskiptavini. Þær miða einnig að því að félagar í JFÍ, viljandi eða vísvitandi, skaði ekki ímynd jarðvísindanna sem vísindagreinar heldur hagnýti sér kunnáttu sína til að skapa þjóðfélaginu aukið öryggi og tryggja vandaða meðferð á gæðum náttúrunnar. Það er skylda allra félaga JFÍ að fylgja siðareglum félagsins, kynna þær nýjum félögum JFÍ og leita álits annarra félaga vegna vafaatriða við túlkun þeirra.


Reglur þessar ná til allra jarðfræðistarfa hvar sem þau eru unnin af félagsmönnum. Ef siðareglur eru til í landi eða á svæði þar sem félagi í JFÍ starfar skal hann fara eftir þeim reglum sem þar gilda, en þó aðeins ef þær siðareglur eru jafn víðtækar og kröfur eru ekki minni en í siðareglum JFÍ.

1.1 Heiðarleiki er grunnur allra eðlilegra samskipta á milli manna og því þarf starf sérhvers félaga JFÍ að grundvallast á heiðarleika. Siðareglur miða að því að skýra og skilgreina hvar og hvernig það hugtak á við í starfi, í samskiptum félaga og gagnvart almenningi. Félagi vinnur af vísindalegri samviskusemi og hefur í heiðri fagleg vinnubrögð þannig að rannsóknir hans standist ströngustu kröfur um fagmennsku. Hann rökstyður mál sitt og forðast illa grundaðar og órök studdar fullyrðingar.

1.2 Jarðvísindamenn skulu í starfi sínu leggja áherslu á að hafa það sem sannara reynist, óháð hagsmunatengslum við opinberar stofnanir, samtök, fyrirtæki og einstaklinga, þar á meðal aðra félaga JFÍ. Heiðarleg vinnubrögð er hafa sannleikann að leiðarljósi munu ætíð þjóna samfélaginu, vísindunum og faginu best.

1.3 Félagi tekur hvorki að sér verkefni sem sérfræðingur á öðru fagsviði en sínu, né tekst hann á herðar skuldbindingar sem hann hefur ekki hæfni til að fullnægja þótt um sé að ræða fasta viðskiptavini eða að hann hafi áður gefið ráð til viðkomandi viðskiptavinar.

1.4 Jarðvísindamenn skulu í ritum sínum ætíð vísa til heimilda eftir því sem við á, þannig að lesandi geti á auðveldan hátt sannreynt heimildina. Þá skal vísa í eins upprunalega heimild og unnt er.

1.5 Jarðfræðingur á að vera gagnrýninn, jafnt á eigin niðurstöður sem annarra, og á ekki að samþykkja niðurstöður annarra fræðimanna af orðspori þeirra einu saman né á hann að samsinna viðteknum skoðunum af gömlum vana. Hann á ávallt að vera reiðubúinn að skipta um skoðun á einstökum málum ef ástæða er til.
Það eru m.a óvönduð og óvísindaleg vinnubrögð ef jarðvísindamaður vísvitandi:

  • Býr umyrða- og fyrirvaralaust til upplýsingar sem engar heimildir eru fyrir.
  • Falsar heimildir og dagsetningar.
  • Notar með ólögmætum eða óviðteknum hætti ritverk, hugmyndir eða kenningar annarra.
  • Velur úr heimildum aðeins það sem hentar niðurstöðum hans en sleppir að geta þess sem mælir á móti .
  • Misnotar tölulegar upplýsingar til stuðnings niðurstöðum sínum
  • Gætir ekki fyllstu sanngirni gagnvart skoðunum annarra.
  • Getur ekki framlags samverkamanna sinna, aðstoðarmanna, nemenda og annarra sem hafa komið að verkinu.

2.1 Ábyrgð félaga gagnvart almenningi í málum sem varða heilbrigði, fjárhagslega afkomu og öryggi, er hafin yfir hagsmuni einstaklinga eða viðskiptavina. Sé ekki tekið tillit til skoðana félaga að þessu leyti á hann að upplýsa viðskiptavin eða vinnuveitanda og hugsanlega opinbera aðila um stöðu mála.

2.2 Félagi skal alltaf forðast yfirborðslegar, órökstuddar og ýktar yfirlýsingar og ekki ljá slíkum málflutningi stuðning sinn, einkum þegar um er að ræða atriði sem tengjast faglegri ábyrgð og stangast á við faglegt mat. Komi fram vafasamar yfirlýsingar eða fullyrðingar er félaga skylt að gera athugasemdir, leiðrétta þær og benda á aðrar leiðir eða rannsóknir sem geta aukið öryggi framkvæmdar. Verði jarðvísindamaður var við að ráðgjöf sem hann hefur veitt sé ekki fylgt, á hann að upplýsa viðkomandi aðila um það, hvort sem það samræmist hag hans eða ekki og benda á hættu eða tjón sem gæti hlotist af því að fylgja ekki gefinni ráðgjöf.

2.3 Félagi heimilar hvorki notkun né birtingu á efni og niðurstöðum sínum í skýrslum eða á kortum ef um er að ræða ólöglega eða vafasama notkun.

2.4 Félagi lætur ekki í ljós faglega skoðun, skrifar ekki skýrslu eða ber vitni, án þess að hafa að hans mati fullnægjandi upplýsingar sem varða viðkomandi mál og að skýrt komi fram á hvaða gögnum hann byggir mál sitt.
2.5 Félagi skal hvorki gefa rangar yfirlýsingar né rangar upplýsingar þótt hann sé beittur þrýstingi af vinnuveitanda eða viðskiptavini.

2.6 Félagi skal gæta hófs við kynningu á sjálfum sér og þeirri vinnu eða rannsóknum sem hann hefur unnið. Hann forðast sjálfhól, ýkjur og yfirborðsmennsku og hreykir sér ekki upp yfir aðra.

2.7 Félagi hefur ekki í flimtingum né gefur í skyn hvað felst í trúnaðarupplýsingum sem honum hefur verið trúað fyrir eða hann sér eða verður áskynja um án þess að honum hafi verið ætlað að vita af þeim.

3.1 Félagi skal gæta hagsmuna vinnuveitanda og viðskiptavina eftir því sem unnt er og svo fremi að það stangist ekki á við hagsmuni almennings, lög, faglegar skyldur og siðareglur JFÍ.

3.2 Telji félagi JFÍ að skuldbindingar hans gagnvart vinnuveitanda eða viðskiptavini stangist á við faglegar skyldur og siðfræði skal hann fá slíkum skuldbindingum breytt eða falla frá því verkefni sem um ræðir.

3.3 Félagi skal gefa væntanlegum vinnuveitanda eða viðskiptavini allar upplýsingar er varða eigin hagsmuni sem gætu tengst fyrirliggjandi verkefni eða starfi.

3.4 Félagi notar hvorki beint né óbeint trúnaðarupplýsingar, einkaleyfi eða hugmyndir vinnuveitanda eða viðskiptavinar til að bæta samkeppnisaðstöðu sína gagnvart þriðja aðila. Hann notar ekki slíkar upplýsingar á þann hátt að það skaði hagsmuni þess aðila sem veitti upplýsingarnar eða þar sem upplýsingar urðu til.

3.5 Félagi sem tekið hefur að sér ákveðið verkefni fyrir viðskiptavin tekur ekki að sér verkefni fyrir annan án samþykkis þess fyrri ef hagsmunir þeirra kunna að stangast á.

3.6 Félagi skal ekki hagnast á upplýsingum sem hann aflar fyrir vinnuveitanda eða viðskiptavin, nema sérstaklega hafi verið um það samið eða að það skaði ekki hagsmuni vinnuveitanda eða viðskiptavinar né valdi öðrum hagsmunaárekstrum.

3.7 Félagi í JFÍ ráðleggur viðskiptavinum sínum eða vinnuveitanda að leita ráða hjá öðrum sérfræðingum sé hagsmunum þeirra betur sinnt á þann hátt. Auk þess skal hann ætíð upplýsa viðskiptavini sína um þær takmarkanir sem kunna að vera við lausn faglegra mála, einkum ef sjáanlegt er að slíkar lausnir leiði til aukins kostnaðar við að leysa tiltekið verkefni.

3.8 Félagi skal ekki þiggja duldar greiðslur fyrir að benda vinnuveitanda eða viðskiptavini á eða mæla með þjónustu annarra aðila.

3.9 Félagi skal ekki breyta eða neita tilvist staðreynda né tæknilegum eða vísindalegum sannindum þótt slíkt sé viðskiptavini í hag, né leiðir hann almenning á villigötur með álíka framferði.

4.1 Félagi gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að aðferðir hans við að leysa tiltekin verkefni valdi sem minnstum skaða á umhverfinu.

4.2 Félaga er skylt að vanda vinnubrögð sín og slá ekki af faglegum kröfum, einkum þegar slík vinnubrögð geta teflt í tvísýnu efnislegum eða félagslegum gæðum eða valdið umhverfisspjöllum.

4.3 Félagi skal kynna sér og fara eftir lögum um umhverfisvernd og reglugerðir og staðla er varða verndun umhverfisins.

5.1 Félagi skaðar hvorki heiður né vinnu annars félaga með ósönnum staðhæfingum eða dylgjum.

5.2 Félagi lætur aðra njóta þess heiðurs og umbunar sem þeir eiga skilið og eignar sér hvorki í ræðu né riti verk eða vinnu annarra. Hann þiggur hvorki heiður né umbun sem ekki er hans með réttu.

5.3 Félagi leitast við að halda góðri samvinnu við aðra félaga og einstaklinga og stuðlar að eðlilegum skoðana- og gagnaskiptum sem verða viðkomandi aðilum til framdráttar.

5.4 Jarðvísindamanni er heimilt að nota við rannsóknir sínar og í ritverkum gögn eða aðra vinnu sem hefur verið unnin undir hans stjórn, svo sem af nemendum eða undirmönnum og skal hann þá ætíð upplýsa þá um slík not og ætíð geta framlags þeirra. Félagar í JFÍ skulu hvorki eigna sér heiður af hugmyndum nemenda sinna eða samstarfsmanna, né nýta sér vinnu þeirra án þess að skýra frá í hverju framlag þeirra er fólgið. Óbirt gögn annarra fræðimanna skal aðeins nota með fullu samþykki og í samræmi við vilja þeirra enda komi skýrt fram hvaðan þau eru fengin.

6.1 Teljist félagi brotlegur við þessar reglur sætir mál hans meðferð samkvæmt ákvæðum í lögum eða samþykktum JFÍ.