Haustráðstefna Jarðfræðafélagsins 2017

Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands verður haldin þann 17. nóvember næstkomandi. Heiðursgestir að þessu sinni verða þeir, Benedikt Steingrímsson, Hjalti Franzson og Páll Einarsson og verður þema ráðstefnunnar tektóník og jarðhiti. Nánari upplýsingar og dagskrá verða auglýst á næstunni.

NGWM 2018

Minnum á Norræna vetrarmótið 2018, nánari upplýsingar má finna HÉR

Aðalfundur 2017

Aðalfundur Jarðfræðafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 28. júní í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í fundarsal á 3. hæð í vesturenda hússins kl. 18:30 eins og auglýst var til félagsmanna 20. júní síðastliðinn. Dagskrá aðalfundar: 1. Formaður flytur skýrslu stjórnar um félagsstarfið, starfsárið 2016-2017 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir árið 2016 3. Kosning stjórnar Jarðfræðafélags Íslands […]

Dagskrá Vorráðstefnu JFÍ 2017

Dagskrána má finna á hlekknum hér að neðan, ráðstefnan verður sem fyrr segir haldin föstudaginn 10. mars í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Dagskrá Vorráðstefnu JFÍ 2017   Ágripahefti má finna undir flipanum Ráðstefnur.  

Vorráðstefna Jarðfræðafélags Íslands 2017

Kæru félagar, Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins verður haldin 10. mars næstkomandi í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Um er að ræða heilsdagsráðstefnu, föstudaginn 10. mars, frá kl 09:00 til 17:00, en skráning verður frá klukkan 8:30. Auglýst er eftir ágripum erinda og veggspjalda og tilkynningu um þátttöku. Eins og áður er Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins opin fyrir alls kyns erindum, […]

Dagskrá Haustráðstefnu og skráningarfrestur

Kæru félagsmenn, við minnum á Haustráðstefnu Jarðfræðafélagsins þann 18. nóvember næstkomandi, í sal Orkuveitu Reykjavíkur. Skráning sendist á Lúðvík: ludvik.e.gustafsson@samband.is, fyrir þann 15. nóvember 2016. Með skráningu þarf eftirfarandi að koma fram: Nafn Greiðandi og verknúmer ef við á Verður þú í hádegismat? Já/nei (Ljúffeng sjávarréttarsúpa, nýbakað brauð og salatbar) Verður þú í móttökunni að lokinni […]

Haustráðstefna JFÍ 2016 – Upplýsingar um skráningu og mælendaskrá

Kæru félagar, nú styttist í Haustráðstefnu félagsins, eins og áður segir verður hún haldin föstudaginn 18. nóvember í sal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík. Heiðursgestir ráðstefnunar eru þau, Birgir Jónsson, Ingvar Birgir Friðleifsson og Ragna Karlsdóttir. Mælendaskrá má sjá hér að neðan, skráning á ráðstefnuna sendist á Lúðvík, ludvik.e.gustafsson@samband.is, fyrir þann 15. nóvember 2016. […]

Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands 2016

Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands verður haldin þann 18. nóvember næstkomandi í sal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík. Heiðursgestir að þessu sinni verða þau, Birgir Jónsson, Ingvar B. Friðleifsson og Ragna Karlsdóttir og verður þema ráðstefnunnar jarðhiti og jarðverkfræði. Nánari upplýsingar og dagskrá verða auglýst á næstunni.

Haustferð Jarðfræðafélags Íslands 2016

Verður farin laugardaginn 8. október næstkomandi, Sigurður Garðar Kristinsson og Sæmundur Ari Halldórsson verða leiðsögumenn að þessu sinni. Farið verðu frá Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands kl 8:30 og snúið aftur í bæinn um kl. 17:00. Skráning sendist á Sigurlaugu, sillamaj@gmail.com, og rennur skráningarfrestur út að kvöldi 5. októbers. JFÍ býður félagsmönnum í rútuna, en þeir […]

Aðalfundur Jarðfræðafélags Íslands 2016

Eins og auglýst var í pósti til félagsmanna þá verður aðalfundur Jarðfræðafélags Íslands haldinn mánudaginn 9. maí í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í fundarsal á 3. hæð í vesturenda hússins kl. 19:45. Dagskrá: 19:45 – 20:00  Kaffi og konfekt 20:00 – 20:30  Páll Einarsson flytur erindi um jarðfræði Tortola og Seychelles eyja 20:30 – 21:30  […]