Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands 26. nóvember 2010

Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands 26. nóvember 2010, í sal Arion Banka í Borgartúni Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands er að þessu sinni haldin til heiðurs Sigurði Steinþórssyni, prófessors í jarðfræði við Háskóla Íslands, á 70 afmælisári hans. Um er að ræða heilsdagsráðstefnu sem stendur frá klukkan 9:00 til 17:00 þar sem fjöldi vísindamanna munu halda fyrirlestra sem á […]

Haustferð JFÍ

Haustferð félagsins verður farin laugardaginn 2. október og verður þema dagsins eldgosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess. Lagt verður af stað frá BSÍ klukkan 8:00 og fyrirhuguð heimkoma er klukkan 18:00. Sérfræðingar bæði úr Háskóla Íslands og af Veðurstofunni sem unnið hafa að ýmsum rannsóknum tengdum gosinu munu greina frá rannsóknum sínum. Gert er ráð […]

Afhjúpun minnisvarða um Dr. Helga Pjeturss

Í desember árið 2005 voru liðin 100 ár frá því að Helgi varð doktor í jarðfræði, fyrstur Íslendinga, og var honum af því tilefni reistur minnisvarði í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Helgi gerði sínar fyrstu meginuppgötvanir að Hellisholtum í Hrunamannahreppi og hefur nú verið komið þar fyrir upplýsingaskildi til minningar um það afrek. Jafnframt hefur […]

Ráðstefna við Háskóla Íslands 22.-24. apríl 2010 í tilefni af 70 ára afmæli Sigfúsar Johnsens

Vinsamlegast athugið! Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli er ráðstefnunni Leyndardómar Grænlandsjökuls – Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um lofstlagsbreytingar og eldgosasögu, sem halda átti dagana 22.-24. apríl,  frestað fram í ágústlok. Leyndardómar Grænlandsjökuls. Vitnisburður ískjarna, setlaga og  jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu. Sigfús Johnsen eðlis- og jöklafræðingur við Hafnarháskóla er einn af kunnustu vísindamönnum Íslendinga um þessar mundir. […]

Dagskrá vorráðstefnu

Dagskrá vorráðstefnu JFÍ þann 26. mars næstkomandi 08:15 – 08:45 Skráning Erindi Fundarstjóri: Kristín Vogfjörð 08:45 – 08:55 Setning: Þorsteinn Sæmundsson 08:55 – 09:10 Jarðskjálftavirkni og landbreytingar samfara kvikuhreyfingunum undir Eyjafjallajökli  2009-2010 – Sigurlaug Hjaltadóttir, Sigrún Hreinsdóttir, Matthew J. Roberts, Gunnar B. Guðmundsson, Amandine  Auriac , Freysteinn Sigmundsson, Steinunn Jakobsdóttir og jarðvárhópurinn á Veðurstofu Íslands […]

Vorráðstefna Jarðfræðafélags Íslands

26. mars 2010 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands Árleg vorráðstefna Jarðfræðafélags Íslands verður haldin föstudaginn 26. mars 2010 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Aðalfundur JFÍ verður haldinn í hádegishléi og verða aðalfundargögn send félagsmönnum fyrir fundinn. Um er að ræða heilsdagsráðstefnu, frá kl 09:00 til 17:00. Áréttað er að þátttakendur verða að skrá sig á ráðstefnuna, […]

Nýja Ísland – Ný sýn á jarðfræði Íslands

Sælir félagar í JFÍ Haukur Jóhannesson jarðfræðingur hjá ÍSOR heldur fræðsluerindi í Víðgelmi, Grensásvegi 9, 17. desember kl. 13.00 undir yfirskriftinni: Nýja Ísland – Ný sýn á jarðfræði Íslands Fyrirlesturinn fjallar um sögu gosbeltaflutninga á Íslandi og þar eru settar fram hugmyndir um að gosbeltaflutningar hafi verið fimm eða sex á síðustu 16 milljónum ára […]

Félagsgjöld

Kæru félagar Nú er verið að senda út greiðsluseðla fyrir félagsgjöldum Jarðfræðafélags Íslands 2009. Seðlarnir ættu að berast ykkur fljótlega. Ef enginn seðill berst ykkur þá bið ég ykkur vinsamlegast um að hafa samband við mig í netfangið unnur@mannvit.is og það verður lagfært eins fljótt og hægt er. Kveðja Sóley Unnur Einarsdóttir gjaldkeri JFÍ

Jarðskjálftar og aðdragandi þeirra

Orkugarði, Grensásvegi 9, föstudaginn 30. október Ágætu félagar Við viljum minna á ráðstefnuna “Jarðskjálftar og aðdragandi þeirra”/”Earthquakes and pre-earthquake processes” sem haldin verður í Orkugarði, Grensásvegi 9, föstudaginn 30. október, en í ár eru liðin 100 ár frá því að fyrsti jarðskjálftamælirinn var settur upp á Íslandi. Ráðstefnan er haldin í minningu Sigurðar Th. Rögnvaldssonar, […]

Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands

Salur Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, 23. október 2009 Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands er að þessu sinni haldin til heiðurs Sveini P. Jakobssyni, jarðfræðingi á Náttúrufræðistofnun Íslands, á 70 ára afmæli hans. Um er að ræða heilsdagsráðstefnu sem stendur frá klukkan 9:00 til 17:00. Dagskrá erinda er hér fyrir neðan. Leitað var til vísindamanna sem á […]