Jarðfræðafélags Íslands

Stjórn, lög og siðareglur

Félagið var stofnað 16. mars 1966

Stjórn

2023-2024
Þorsteinn Sæmundsson (formaður), Michelle Maree Parks (varaformaður), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldkeri), Hafdís Eygló Jónsdóttir (ritari), Ásta Rut Hjartardóttir, Halldór Geirsson og Bjarni Gautason (meðstjórnendur).

1966-1968: Sigurður Þórarinsson (form), Guðmundur E. Sigvaldason (rit), Þorleifur Einarsson (gjaldk), Þorbjörn Sigurgeirsson, Guðmundur Pálmason.

1968-1969: Trausti Einarsson (form), Sveinbjörn Björnsson (rit), Þorleifur Einarsson (gjaldk), Þorbjörn Sigurgeirsson, Guðmundur Kjartansson.

1969-1970: Trausti Einarsson (form), Sveinbjörn Björnsson (rit), Haukur Tómasson (gjaldk), Guðmundur Kjartansson, Páll Theódórsson.

1970-1971: Guðmundur E. Sigvaldason (form), Páll Theódórsson (rit), Haukur Tómasson (gjaldk), Guðmundur Pálmason, Sveinn P. Jakobsson.

1971-1972: Guðmundur E. Sigvaldason (form), Kristján Sæmundsson (rit), Guðmundur Pálmason, Sveinn P. Jakobsson, Svend Aage Malmberg.

1972-1973: Þorleifur Einarsson (form), Kristján Sæmundsson (rit), Svend Aage Malmberg Sveinbjörn Björnsson, Sigurður Steinþórsson.

1973-1974: Þorleifur Einarsson (form), Karl Grönvold (rit), Leo Kristjánsson (gjaldk), Sveinbjörn Björnsson, Sigurður Steinþórsson.

1974-1975: Sveinbjörn Björnsson (form), Karl Grönvold (rit), Leo Kristjánsson (gjaldk), Axel Björnsson, Sigríður P. Friðriksdóttir.

1975-1976: Sveinbjörn Björnsson (form), Axel Björnsson (rit), Sigríður P. Friðriksdóttir (gjaldk), Kjartan Thors, Leifur A. Símonarson.

1976-1977: Karl Grönvold (form), Leifur A. Símonarson (rit), Kjartan Thors (gjaldk), Birgir Jónsson, Hrefna Kristmannsdóttir.

1977-1978: Karl Grönvold (form), Haukur Jóhannesson (rit), Birgir Jónsson (gjaldk), Hrefna Kristmannsdóttir, Páll Einarsson.

1978-1979: Axel Björnsson (form), Haukur Jóhannesson (rit), Davíð Egilson (gjaldk), Páll Einarsson, Jón Eiríksson.

1979-1980: Axel Björnsson (form), Helgi Torfason (rit), Davíð Egilson (gjaldk), Jón Eiríksson, Gillian Foulger.

1980-1981: Kjartan Thors (form), Gillian Foulger (rit), Helgi Torfason (gjaldk), Sigmundur Einarsson, Stefán Arnórsson.

1981-1982: Kjartan Thors (form), Stefán Arnórsson (rit), Ingibjörg Kaldal (gjaldk), Sigmundur Einarsson, Kristinn Albertsson.

1982-1983: Sigurður Steinþórsson (form), Kristinn Albertsson (rit), Ingibjörg Kaldal (gjaldk), Hallgrímur Jónasson, Margrét Kjartansdóttir.

1983-1984: Sigurður Steinþórsson (form), Hallgrímur Jónasson (rit), Margrét Kjartansdóttir (gjaldk), Ágúst Guðmundsson eldri, Hreinn Haraldsson.

1984-1985: Hrefna Kristmannsdóttir (form), Sigríður P. Friðriksdóttir (rit), Ágúst Guðmundsson eldri (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Leifur A. Símonarson.

1985-1986: Hrefna Kristmannsdóttir (form), Sigríður P. Friðriksdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Leifur A. Símonarson, Guðrún Larsen.

1986-1987: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Guðrún Larsen (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Gylfi Þ. Einarsson, Árný Sveinbjörnsdóttir.

1987-1988: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Árný Sveinbjörnsdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Gylfi Þ. Einarsson, Margrét Hallsdóttir.

1988-1989: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Margrét Hallsdóttir (rit), Þórólfur Hafstað (gjaldk), Guðrún Helgadóttir, Þorgeir Helgason.

1989-1990: Elsa G. Vilmundardóttir (form), Guðrún Helgadóttir (rit), Ásgrímur Guðmundsson (gjaldk), Þorgeir Helgason, Áslaug Geirsdóttir.

1990-1991: Stefán Arnórsson (form), Auður Andrésdóttir (rit), Ásgrímur Guðmundsson (gjaldk), Áslaug Geirsdóttir, Steinunn Jakobsdóttir.

1991-1992: Stefán Arnórsson (form), Auður Andrésdóttir (rit), Hjalti Fransson (gjaldk), Steinunn Jakobsdóttir, Gestur Gíslason.

1992-1993: Freyr Þórarinsson (form), Guðrún Larsen (rit), Hjalti Franson (gjaldk), Gestur Gíslason, Guðrún Sverrisdóttir.

1993-1994: Freyr Þórarinsson (form), Guðrún Larsen (rit), Guðmundur Ómar Friðleifsson (gjaldk), Guðrún Sverrisdóttir, Hreinn Haraldsson.

1994-1995: Ágúst Guðmundsson yngri (form), Guðrún Larsen (rit), Guðmundur Ó. Friðleifsson (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Georg Douglas.

1995-1996: Ágúst Guðmundsson yngri (form), Guðrún Larsen (rit), Skúli Víkingsson (gjaldk), Hreinn Haraldsson, Magnús T. Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Georg Douglas.

1996-1997: Árný E. Sveinbjörnsdóttir (form), Guðrún Larsen (rit), Skúli Víkingsson (gjaldk), Georg Douglas, Helgi Torfason,  Hreinn Haraldsson, Magnús T. Guðmundsson.

1997-1998: Árný E. Sveinbjörnsdóttir (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Hjálmar Eysteinsson (gjaldk), Georg Douglas, Helgi Torfason, Kristján Ágústsson, Magnús T. Guðmundsson.

1998-1999: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Hjálmar Eysteinsson (gjaldk), Auður Ingimarsdóttir, Bryndís Róbertsdóttir, Kristján Ágústsson, Sigurður Sveinn Jónsson.

1999-2000: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Bryndís Róbertsdóttir (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson, Grétar Ívarsson, Haraldur Auðunsson, Kristján Ágústsson.

2000-2001: Helgi Torfason (form), Edda Lilja Sveinsdóttir (rit), Kristján Ágústsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson, Grétar Ívarsson, Haraldur Auðunsson, Þorsteinn Þorsteinsson.

2001-2002: Helgi Torfason (form), Haraldur Auðunsson (vform), Kristján Ágústsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Jórunn Harðardóttir, Grétar Ívarsson, Þorsteinn Þorsteinsson.

2002-2003: Ármann Höskuldsson (form), Haraldur Auðunsson (vform), Hjörleifur Sveinbjörnsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Grétar Ívarsson, Jórunn Harðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.

2003-2004: Ármann Höskuldsson (form), Haraldur Auðunsson (vform), Hjörleifur Sveinbjörnsson (gjaldk), Sigurður Sveinn Jónsson (rit), Vigdís Harðardóttir, Jórunn Harðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.

2004-2005: Ármann Höskuldsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Andri Stefánsson (rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2005-2006: Ármann Höskuldsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Andri Stefánsson (rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2006-2007: Andri Stefánsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Ingibjörg Elsa Björnsdóttir(rit), Kristín Vogfjörð, Rikke Pedersen, Steinunn Hauksdóttir.

2007-2008: Andri Stefánsson (form), Börge Wigum (vform), Bjarni Richter (gjaldk), Eydís Eiríksdóttir(rit), Kristín Vogfjörð, Sóley Unnur Einarsdóttir, Anette Kæregaard Mortensen.

2008-2009: Andri Stefánsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Anette Kæregaard Mortensen (gjaldk), Eydís S. Eiríksdóttir (rit), Þorsteinn Sæmundsson, Sóley Unnur Einarsdóttir, Björn Harðarson.

2009-2010: Þorsteinn Sæmundsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Sóley Unnur Einarsdóttir (gjaldk), Eydís S. Eiríksdóttir(rit), Ívar Örn Benediktsson, Björn Harðarson, Theódóra Matthíasdóttir.

2010-2011: Þorsteinn Sæmundsson (form), Kristín Vogfjörð (vform), Guðrún Eva Jóhannsdóttir (gjaldk), Ívar Örn Benediktsson (rit), Björn Harðarson, Theódóra Matthíasdóttir, Lúðvík Eckardt Gústafsson.

2011-2012: Þorsteinn Sæmundsson (form), Björn Harðarson (vform), Guðrún Eva Jóhannsdóttir (gjaldk), Ívar Örn Benediktsson (rit), Benedikt Gunnar Ófeigsson, Theódóra Matthíasdóttir, Lúðvík Eckardt Gústafsson.

2012-2013: Þorsteinn Sæmundsson (form), Theódóra Matthíasdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Ólafur Ingólfsson, Björn Harðarson, Benedikt Gunnar Ófeigsson.

2013-2014: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Þorsteinn Sæmundsson (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk),  Sigurður Garðar Kristinsson (rit), Erla María Hauksdóttir, Björn Harðarson, Benedikt Gunnar Ófeigsson.

2014-2015: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk),  Sigurður Garðar Kristinsson (rit), Erla María Hauksdóttir, Björn Harðarson, Þorsteinn Sæmundsson.

2015-2016: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Erla María Hauksdóttir (rit), Björn Harðarson, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.

2016-2017: Sigurlaug María Hreinsdóttir (form), Esther Ruth Guðmundsdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Erla María Hauksdóttir (rit), Björn Harðarson, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.

2017-2018: Þorsteinn Sæmundsson (form), Erla María Hauksdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Sylvía Rakel Guðjónsdóttir, Ásta Rut Hjartardóttir, Þóra Björg Andrésdóttir.

2018-2019: Þorsteinn Sæmundsson (form), Þóra Björg Andrésdóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Sigurlaug María Hreinsdóttir (rit), Ásta Rut Hjartardóttir, Sylvía Rakel Guðjónsdóttir og Erla María Hauksdóttir.

2019-2020: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

2020-2021: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

2021-2022: Þorsteinn Sæmundsson (form), Ásta Rut Hjartardóttir (vform), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldk), Ingvar Atli Sigurðsson (rit), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Michelle Maree Parks.

2022 – 2023: Þorsteinn Sæmundsson (formaður), Michelle Maree Parks (varaformaður), Lúðvík Eckardt Gústafsson (gjaldkeri), Hafdís Eygló Jónsdóttir (ritari), Halldór Geirsson, Bjarni Gautason og Ásta Rut Hjartardóttir (meðstjórnendur).

Lög félagsins

01.

Félagið heitir Jarðfræðafélag Íslands (Erlent heiti Geoscience Society of Iceland).

02.

Hlutverk félagsins er að efla íslenskar jarðfræðarannsóknir. Þessu hlutverki hyggst félagið gegna með því að:

a. Stuðla að kynningu íslenskra jarðvísindarannsókna.
b. Efna til umræðufunda, er haldnir skulu a.m.k. tvisvar á ári. c. Vera aðili að alþjóðasamtökum og alþjóðasamvinnu á sviðum þessara fræða.

03.

a. Félagsmenn geta orðið allir vísindamenn á sviði jarðfræði, jarðefnafræði og jarðeðlisfræði, svo og vísindamenn í skyldum fræðigreinum, sem vinna að rannsóknum á ofangreindum sviðum.
b. Stofnanir sem starfa á sviði jarðvísinda geta einnig fengið aðild að félaginu. Tilgangurinn með slíkri aðild er að efla samstarf á öllum sviðum jarðvísinda sem og tengsl milli félaga og stofnana.

04.

Stjórn félagsins skipa sjö menn. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Forseti er kosinn sérstaklega, en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti. Annað árið ganga úr stjórninni forseti og þrír aðrir stjórnarmenn, en hitt árið þrír stjórnarmenn.

05.

Aðalfund skal halda að vori ár hvert, en þó ekki síðar en í lok júní og dagskrá hans skal vera sem hér segir:

a. Skýrt frá helstu framkvæmdum á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins
c. Kosining stjórnar og skoðanda reikninga.
d. Skipun í stjórnir félagsins e. Inntaka nýrra félaga.
f. Önnur mál.

Aðalfund skal boða skriflega og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum nema annað sé til tekið í félagslögum.

06.

Lagabreytingar geta aðeins orðið á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu tilkynntar í fundarboði og til þess að þær öðlist gildi þurfa þær að vera samþykktar með minnst 2/3 greiddra atkvæða.

07.

Árgjald einstaklinga og stofnana skal ákveðið á aðalfundi. Atkvæðisbærir á aðalfundi eru þeir einir, sem greitt hafa árgjöld sín.
Hver stofnun getur tilnefnt fulltrúa sem fer með atkvæði hennar. Fulltrúi stofnunar hefur ekki kjörgengi til setu í stjórn nema hann sé félagi í Jarðfræðafélagi Íslands.

Viðmið um góða starfshætti

Jarðvísindi er samheiti yfir þær fræðigreinar sem fást við samsetningu, uppbyggingu, þróun, sögu og auðlindir jarðar. Þau fjalla ennfremur um hagnýtingu þeirrar þekkingar sem jarðvísindafólk býr yfir til hagsbóta eða aukins öryggis fyrir samfélagið. Jarðvísindafólk hefur viðurkennda menntun og hæfni á sviði jarðvísinda og skal ávallt gæta að því áliti og orðspori sem það skapar sér og félögum sínum innan greinarinnar.

Allir félagar í Jarðfræðafélagi Íslands (JFÍ) samþykkja að starfa samkvæmt lögum um vandaða starfshætti í vísindum (70/2019 með síðari tíma breytingum) og þeim viðmiðum sem hér eru kynnt um samskipti milli félaga sem og við vinnuveitendur, viðskiptavini og opinbera aðila. Áhersla er lögð á að félagar í JFÍ stuðli að góðri ímynd jarðvísinda sem vísindagreinar og hagnýti kunnáttu sína þjóðfélaginu til heilla.

Félagar JFÍ eru heiðarlegir og sýna fólki tillitssemi og virðingu óháð kyni, kynhneigð, lífskjörum, þjóðfélagsstöðu, menningu, þjóðerni og kynþætti.

Þetta felur í sér að:

  • Koma fram af hreinskilni, tillitssemi, sanngirni, vinsemd og virðingu við annað fólk.
  • Hafa ávallt í heiðri góða siði og grundvallargildi samfélagsins.
  • Hafa í heiðri jafnrétti kynja og kynþátta.
  • Virða fag- og ábyrgðarsvið annarra og vinnuframlag þeirra.
  • Stuðla að góðum starfsanda með einlægni, heiðarleika og umburðarlyndi. 

Félagar JFÍ gera sér grein fyrir ábyrgð sinni og vinna í samræmi við viðurkenndar gæðakröfur.

Þetta felur í sér að:

  • Viðhalda og endurnýja stöðugt þekkingu sína og færni.
  • Deila þekkingu sinni og færni með samstarfsfólki og almenningi.
  • Vinna verk sín faglega og eftir bestu samvisku.
  • Virða lög og reglur samfélagsins.
  • Gæta hagsmuna samfélags og viðskiptavina sinna.
  • Gera grein fyrir tengslum eða hagsmunum sem gætu gert starf þeirra tortryggilegt.

Félagar JFÍ eru meðvitaðir um áhrif verka sinna á náttúru, umhverfi og samfélag.

Þetta felur í sér að félagar skulu:

  • Setja ávallt í öndvegi hagsmuni náttúrunnar og öryggi, heilsu og velferð almennings.
  • Leitast við að tæknilegar lausnir hafi sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda að viðmiði.
  • Vera heiðarlegir og hreinskilnir um jarðfræðileg gögn og möguleika þeirra og/eða takmarkanir til að varpa ljósi á tiltekin vandamál, náttúruvá eða rannsóknaspurningar og lausnir á þeim.
  • Taka virkan þátt í upplýstri opinberri umræðu um samfélagsleg málefni þegar hún snertir jarðvísindi.