Ferðastyrkir JFÍ
Félagið styrkir meistaranema til að fara á ráðstefnur og kynna verkefni sín. Að jöfnu er miðað við ferðir á ráðstefnur erlendis.
Auglýst er sérstaklega eftir umsóknum um ferðastyrki einu sinni til tvisvar á ári.
Í janúar 2026 hlutu ferðastyrk:
Eva Björk Sverrisdóttir, Uppsalaháskóla í Svíþjóð, til kynningar á verkefni sínu “Magnetotelluric Imaging of the Upper Mantle Conductivity in Iceland: Investigating Signs of Partial Melt Due to Glacial Uplift” á ráðstefnu EGU í Vínarborg, Austurríki, í maí 2026.
Glen L’Estrange, Háskóla Íslands, til til kynningar á verkefni sínu “Tephra from the Leiðólfsfell Rootless Cone Group: Implications of Sustained Rootless Eruptions ” á ráðstefnu NGWM í Turku, Finnlandi, í janúar 2026.
