Aðalfundur Jarðfræðafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 5. maí í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í fundarsal á 3. hæð í vesturenda hússins kl. 19:45.
Dagskrá:
19:45 – 20:00 Kaffi og konfekt
20:00 – 20:30 Myndasýning Sigurðar Garðars Kristinssonar, starfsmanns ÍSOR: Jarðhitaverkefni og mannlífsmyndir frá fjarlægum slóðum.
20:30 – 21:30 Aðalfundur JFÍ
Dagskrá fundar:
1. Formaður flytur skýrslu stjórnar um félagsstarfið, starfsárið 2014-2015
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir árið 2014
3. Kosning stjórnar Jarðfræðafélags Íslands
4. Kosið um þrjá endurskoðendur reikninga (aðal- og varamenn)
5. Kosning siðanefndar
6. Önnur mál
Að fundi loknum – Spjall og léttar veitingar