Málþing 14. nóvember 2026 til heiðurs Bryndísi Brandsdóttur

Jöklarannsóknafélag Íslands og Jarðfræðafélag Íslands með stuðningi Háskóla Íslands halda málþing til heiðurs Bryndísi Brandsdóttur laugardaginn 14. nóvember kl 10. Bryndís er félögum JÖRFÍ of JFÍ af góðu kunn enda hefur hún verið vakin og sofin sem ritstjóri Jökuls í meira en aldarfjórðung auk þess að taka virkan þátt í starfi JÖRFÍ í um hálfa öld. Hún hefur átt farsælan starfsferil sem jarðskjálftafræðingur við Jarðvísindastofnun/Raunvísindastofnun Háskólans og unnið að fjölda rannsóknarverkefna í samstarfi við marga af færustu sérfræðingum á því sviði. Þó Bryndís sé hvergi nærri hætt þykir okkur tímabært að heiðra nú þessa kjarnakonu sem á svo tryggan stað í hjörtum okkar. Ráðstefnan verður haldin í aðal fyrirlestrarsal Öskju í HÍ en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
