Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins verður haldin 14. mars næstkomandi í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Um er að ræða heilsdags ráðstefnu, föstudaginn 14. mars, frá u.þ.b. kl 09:00 til 17:00.
Auglýst er eftir ágripum erinda og veggspjalda og tilkynningu um þátttöku. Eins og áður er Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins opin fyrir alls kyns erindum, enda er hún ekki þematengd. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir félagsmenn, 18.000 kr. fyrir utanfélagsmenn.
Nemendur eru hvattir til að mæta, þeir þurfa ekki að greiða þátttökugjald en nauðsynlegt er þó að þeir skrái sig og er þeim boðið upp á kaffi í hléum. Hádegisverður er hins vegar ekki innifalinn fyrir nemendur, hann býðst þó gegn vægu gjaldi, 1500 kr, og eru nemendur beðnir að taka það fram hvort þeir vilja vera í hádegismat þegar þeir skrá sig.
Áréttuð er samþykkt aðalfundar JFÍ sem heimilar þeim félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt í ráðstefnunni án endurgjalds, en þeir greiði fyrir hádegisverð, 1500 kr. Þeim er að sjálfsögðu boðið upp á kaffi í hléum. Nauðsynlegt er að skrá sig í matinn á skráningarhlekk.
Skráning á ráðstefnuna er hér: https://forms.gle/QzgQMueeHLnQNoFS6
Ágrip erinda/veggspjalda sendist á Þorstein Sæmundsson (steinis@hi.is). Skilafrestur ágripa er föstudagurinn 7. mars. Dagskrá verður auglýst í síðasta lagi þriðjudaginn 11. mars og hægt verður að skrá sig á ráðstefnuna til loka miðvikudagsins 12. mars.
Gert er ráð fyrir að flutningur hvers erindis ásamt spurningum og umfæðum taki 15 mín samtals. Stærð og uppsetning veggspjalds er eins og hverjum þykir henta best.
Ágrip mega vera að hámarki 2 bls. með myndum. Titill erindis verði með feitletruðu 16 pt. Arial (Helvetica), nöfn höfunda í Arial 14. pt. og stofnana í Arial 10 pt. Megintexti verði í Times New Roman, 12 pt. með einföldu línubili. Athugið að texti ágripa er ekki prófarkalesinn. Augljósar villur eru leiðréttar við uppsetningu og frágang en að öðru leyti er texti ágripanna og framsetning hans á ábyrgð höfunda. Opinbert tungumál ráðstefnunnar er íslenska, en heimilt er að senda og flytja erindi á ensku. Ágrip sendist á Word-formi á (steinis@hi.is).
Endilega hengið upp meðfylgjandi auglýsingar upp á vinnustöðum ykkar.
Dear colleagues,
The Iceland Geoscience Society’s spring conference will be held on the coming March 14 in Askja, at the University of Iceland.
It is a full-day conference, Friday, March 14, from 09:00 to 17:00. As before, the Spring Conference of the Geological Society is open to all kinds of topics, and it is not theme-related. The registration fee is ISK 15,000 for members, ISK 18,000 for non-members.
Students are encouraged to attend, they do not have to pay a registration fee, but it is necessary that they register and they are offered coffee during breaks. Lunch is not included for students; however, it is offered for a small fee, ISK 1500, and students are asked to state whether they want to attend lunch when they register.
The approval of the JFÍ general meeting is confirmed, which allows the members who have retired to participate in the conference free of charge, but they pay for lunch, ISK 1500. They are, of course, offered coffee during breaks. It is necessary to register for the meal via the link below.
Registration for the conference is here: https://forms.gle/QzgQMueeHLnQNoFS6
Abstracts of talks/posters should be sent to Þorsteinn Sæmundsson (steinis@hi.is). The deadline for abstracts is Friday, March 7. The program will be announced on Tuesday, March 11 at the latest, and it will be possible to register for the conference through Wednesday, March 12.
It is expected that each presentation and following questions will take 15 minutes in total. Poster-format is non-specific.