Vorráðstefna JFÍ 8. mars 2024

Kæru félagar,

Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins verður haldin 10. mars næstkomandi í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.

Um er að ræða heilsdags ráðstefnu, föstudaginn 10. mars, frá kl 09:00 til 17:00, en skráning verður frá klukkan 8:30. Auglýst er eftir ágripum erinda og veggspjalda og tilkynningu um þátttöku. Eins og áður er Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins opin fyrir alls kyns erindum, enda er hún ekki þematengd. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir félagsmenn, 18.000 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Nemendur við HÍ eru hvattir til að mæta, þeir þurfa ekki að greiða þátttökugjald en nauðsynlegt er þó að þeir skrái sig og er þeim boðið upp á kaffi í hléum. Hádegisverður er hins vegar ekki innifalinn fyrir nemendur, hann býðst þó gegn vægu gjaldi, 1500 kr, og eru nemendur beðnir að taka það fram hvort þeir vilja vera í hádegismat þegar þeir skrá sig.

Áréttuð er samþykkt aðalfundar JFÍ sem heimilar þeim félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt í ráðstefnunni án endurgjalds, en þeir greiði fyrir hádegisverð, 1500 kr. Þeim er þó að sjálfsögðu boðið upp á kaffi í hléum.

Skráning á ráðstefnuna er hér Smellið hér til að skrá ykkur

Gert er ráð fyrir að flutningur hvers erindis og spurningar að því loknu taki 15 mín samtals.

Skilafrestur ágripa er mánudagurinn 6. mars. Dagskrá verður auglýst í síðasta lagi þriðjudaginn 7. mars og hægt verður að skrá sig á ráðstefnuna fram til miðvikudagsins 8. mars.
Ágrip mega vera að hámarki 2 bls. með myndum. Titill erindis verði með feitletruðu 16 pt. Arial (Helvetica), nöfn höfunda í Arial 14. pt. og stofnana í Arial 10 pt. Megintexti verði í Times New Roman, 12 pt. með einföldu línubili. Athugið að texti ágripa er ekki prófarkalesinn. Augljósar villur eru leiðréttar við uppsetningu og frágang en að öðru leyti er texti ágripanna og framsetning hans á ábyrgð höfunda. Opinbert tungumál ráðstefnunnar er íslenska, en heimilt er að senda og flytja erindi á ensku. Ágrip sendist á Word-formi á (steinis@hi.is).