Salur Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, 23. október 2009
Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands er að þessu sinni haldin til heiðurs Sveini P. Jakobssyni, jarðfræðingi á Náttúrufræðistofnun Íslands, á 70 ára afmæli hans. Um er að ræða heilsdagsráðstefnu sem stendur frá klukkan 9:00 til 17:00. Dagskrá erinda er hér fyrir neðan. Leitað var til vísindamanna sem á einn eða annan hátt hafa unnið með Sveini eða að svipuðum rannsóknarefnum og hann. Þátttökugjald er 9000 kr. fyrir félagsmenn, 11000 kr. fyrir utanfélagsmenn og 5000 kr fyrir stúdenta. Áréttuð er samþykkt aðalfundar sem heimilar þeim félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt á ráðstefnunni án endurgjalds. Hádegisverður er innifalinn í ráðstefnugjaldinu og eru menn beðnir um að tilkynna ef þeir ætla ekki í matinn.
Skráning sendist til Sóleyjar Unnar Einarsdóttur (unnur@mannvit.is) fyrir þriðjudaginn 20. október. Við skráningu þarf að koma fram nafn, heimilisfang, kennitala, greiðandi og hvort viðkomandi er félagsmaður í Jarðfræðafélaginu.
Dagskrá Haustráðstefnu JFÍ, 23. október 2009
09:00 – 09:30 Skráning
Fundarstjóri Kristín Vorgfjörð
09:30 – 09:40 Setning Þorsteinn Sæmundsson
09:40 – 09:50 Ávarp Jón Gunnar Ottósson
09:50 – 10:10 Jarðfræðingurinn Sveinn P. Jakobsson Sigurður Steinþórsson
10:10 – 10:30 Þættir úr jarðfræði Torfajökuls Kristján Sæmundsson
10:30 – 11:00 Kaffi
11:00 – 11:20 Eðliseiginleikar móbergstúffs Hjalti Franzson
11:20 – 11:40 Móbergsmyndanir Magnús T. Guðmundsson
11:40 – 12:00 Rennsli Gosefna undir jökli Snorri Páll Snorrason
12:00 – 12:20 Skriðuföll úr móbergsmyndunum Halldór G. Pétursson
12:20 – 12:40 Einfalt líkan sem skýrir uppruna þriggja bergraða á Íslandi Olgeir Sigmarsson
12:40 – 13:40 Matur
Fundarstjóri Þorsteinn Sæmundsson
13:40 – 14:00 Gögn og getsakir um ætterni gjóskulaga Guðrún Larsen
14:00 – 14:20 Hafsbotnsrannsóknir fyrir Suður- og Suðvesturlandi Ármann Höskuldsson
14:20 – 14:40 Steingervingar og eldgos Leifur A. Símonarson
14:40 – 15:00 Jarðhiti á Vestfjörðum – dreifing og uppruni Haukur Jóhannesson
15:00 – 15:30 Kaffi
15:30 – 15:50 Manngerðir hellar og hellisgerðarberg Árni Hjartarson
15:50 – 16:10 Flokkun háhitasvæða – jarðfræði, landmótun og yfirborðsummerki jarðhita Kristján Jónasson
16:10 – 16:30 Móberg og jöklabreytingar: Gögn frá jarðlagasniði á Tjörnesi Jón Eiríksson
16:30 – 16:50 Nýjar steindir í Vestmannaeyjum og Heklu Sigurður Sveinn Jónsson
16:50 – 17:00 Samantekt Sigmundur Einarsson
17:00 – Móttaka til heiðurs Sveini
Dagskráin á pdf