Vorráðstefna JFÍ 8. mars 2024

Smellið hér til að skrá ykkur !

Jarðfræðafélag Íslands, Jarðtæknifélag Íslands, Jarðgangafélag Íslands, Steinsteypufélag Íslands og ISCOLD bjóða til sameiginlegs haustfundar föstudaginn 18.nóvember 2022 í Grósku, Bjargargötu 1 í Vatnsmýrinni.

Boðið verður upp á fjölbreytta og fróðlega dagskrá milli klukkan 9:00 og 16:00, sem endar með léttum veitingum og spjalli frá 16:00 til 18:00.

Þema fundarins verður mannvirkjajarðfræði og verða erindi upplýsandi frekar en mjög fræðileg. Um 20 erindi auk veggspjalda verða kynnt. Dagskrá haustfundar má nálgast hér.

Félagsmenn eru hvattir til að senda inn veggspjöld og ágrip (skilafrestur útrunninn).

Skráning fer fram á heimasíðu Jarðfræðafélag Íslands: jfi.is Fólk er beðið um að skrá sig fyrir kl. 16 á miðvikudag 16. nóvember svo hægt sé að áætla magn veitinga. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum. Skráningargjöld:

  • Almennt gjald – 15.000 krónur
  • Ellilífeyrisþegar – 5.000 krónur
  • Nemendur – 3.000 krónur