Vorráðstefna JFÍ 8. mars 2024

Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 1. nóvember og í ár verður þema hennar eftirfarandi:
Hinn tertíeri jarðlagastafli Íslands.
Á ráðstefnunni verða Axel Björnsson, Jón Ólafsson, Leó Kristjánsson og Páll Imsland heiðraðir sérstaklega fyrir framlög sín til íslenskra jarðfræðirannsókna.

Skráning á ráðstefnuna sendist á Lúðvík E. Gústafsson: (ludvik.e.gustafsson@samband.is)

Hér með er auglýst eftir ágripum erinda.

Skilafrestur ágripa er miðvikudagurinn 23. október klukkan 12:00. Ágrip mega vera að hámarki 2 bls. með myndum. Titill erindis verði með feitletruðu 16 pt. Arial (Helvetica), nöfn höfunda í Arial 14. pt. og stofnana í Arial 10 pt. Megintexti verði í Times New Roman, 12 pt. með einföldu línubili.

Athugið að texti ágripa er ekki prófarkalesinn. Augljósar villur eru leiðréttar við uppsetningu og frágang en að öðru leyti er texti ágripanna og framsetning hans á ábyrgð höfunda. Ágrip skulu vera á íslensku séu höfundar íslenskir, en útlendingum er heimilt að skila ágripi á ensku. Opinbert tungumál ráðstefnunnar er íslenska, en heimilt er að flytja erindi á ensku. Ágrip sendist á Word-formi til Lúðvíks Gústafssonar (ludvik.e.gustafsson@samband.is). Aðeins er tekið við ágripum frá þeim sem eru þátttakendur á ráðstefnunni og eru skil ágrips ígildi skráningar. Við skráningu þarf að koma fram nafn, heimilisfang, kennitala, greiðandi og hvort viðkomandi er félagsmaður í JFÍ.
Gert er ráð fyrir að flutningur hvers erindis og spurningar að því loknu taki 15 mín.

Þátttökugjald er 11.000 kr. fyrir félagsmenn, 13.000 kr. fyrir utanfélagsmenn. Áréttuð er samþykkt aðalfundar sem heimilar þeim félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt í ráðstefnunni án endurgjalds, en þeir greiði fyrir annað sem tengist ráðstefnunni. Þeim er þó að sjálfsögðu boðið upp á kaffi í hléum. Hádegisverður er innifalinn í ráðstefnugjaldi og eru þátttakendur beðnir um að taka fram við skráningu hvort þeir verði í mat.

Staðsetning auglýst síðar.