Jarðvísindastofnun Háskólans auglýsir eftir doktorsnema í verkefnið Binding kolefnis í bergi (carbfix.com). Aðalleiðbeinandi er Sigurður Reynir Gíslason.
Verkefnið Carbfix
Í tilraunaverkefninu á Hellisheiði ætlar hópur vísindamanna og verkfræðinga að fanga koltvíoxíð frá Hellisheiðarvirkjun og breyta því í stein. Koltvíoxíðið verður leyst í vatni undir töluverðum þrýstingi og kolsýrða vatninu dælt í jarðlög á rúmlega 500 m dýpi í Þrengslum sunnan við Hellisheiðarvirkjun. Kolsýruvatnið er hvarfgjarnt, þ.e. það leysir efni eins og t.d. kalsíum, magnesíum og járn tiltölulega hratt úr berginu. Með sýringunni er leysingu bergsins hraðað. Þegar styrkur þessara efna er orðinn nægjanlegur í vatninu ganga þau í efnasamband við koltvíoxíðið og falla út sem föst efni, steindir. Þar með er koltvíoxíðið bundið og getur verið stöðugt þar í milljónir ára.
Hæfniskröfur
Doktorsneminn þarf að hafa lokið meistaraprófi í jarðfræði eða efnafræði.
Markmið
Doktorsneminn mun taka þátt í að þróa sýnatöku- og efnagreiningaraðferðir til þess að sýna fram á bindingu koltvíoxíðs í bergi á Hellisheiði. Hann mun einnig taka þátt í norrænu samstarfsverkefni (sintef.no/Projectweb/NORDICCS/Objectives/) þar sem meta á hversu mikið kolefni er hægt að binda í bergi norrænu landanna.
Doktorsverkefnið er styrkt af Evrópusambandinu og norrænum sjóðum.
Laun eru samkv. kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar og umsóknarfrestur
Upplýsingar um starfið veitir Magnús Birgisson skrifstofustjóri Jarðvísindastofnunar í síma 525 4492 og netfangi magnusb@hi.is .
Umsóknarfrestur er til 30. apríl og ráðið verður í starfið frá 1. júní 2012.
Umsóknir, sem greina frá menntun og fyrri störfum, birtum greinum og rannsóknaráhuga auk meðmæla skulu sendar til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík, eða á netfangið starfsumsoknir@hi.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.